Hótel – Canopy by Hilton

Canopy by Hilton Reykjavík hótelið er staðsett í hjarta höfuðborgarinnar og er hönnun þess – að innan sem utan – afar fáguð og glæsileg. Rafkaup sá hótelinu fyrir stórum hluta af ljósum og lýsingu, í herbergjum, á göngum og í öðrum rýmum.

Bæði inni- og útilýsing notast við LED prófíla frá KLUS í skrautlýsingu (m.a. á veggnum framan við hótelinnganginn) og Woody frá iGuzzini lýsir einnig utandyra, eins og Hunza Tilting Eve Lite og Hunza Wall Down Lite, sem lýsa undir skyggnið við aðalinnganginn.

Birdy lampinn leikur stórt hlutverk í herbergjunum, bæði sem vegglampi og borðlampi (sjá mynd hér að neðan).

Myndir eru teknar af vef hótelsins.