Þjóðleikhúsið

Eitt af verkefnum Rafkaups hefur verið lýsing í leikhús, en Rafkaup sá Þjóðleikhúsinu fyrir ljósum og lýsingu í aðalsal og öðrum rýmum þessarar glæsilegu og sögulegu byggingar. Salurinn sjálfur, almenn svæði og önnur svæði eru lýst með ljósum frá Agabekov. Þrep í uppgöngum er lýst með ljósum frá iGuzzini.

Stór þáttur í þessu verkefni var orkusparnaður. Í flestum rýmum voru notaðar glóperur sem gefa frá sér mikinn hita og eru orkufrekar. Alls var um að ræða u.þ.b. tvö þúsund 40W eða 60W glóperur með samtals um 125kW orkunotkun. Á hverju ári þurfti að skipta um hundruðir pera með tilheyrandi viðbótarkostnaði. Verkefnið gekk út á að skipta út þessum glóperum og nota LED lýsingu. Niðurstaðan var lækkun í orkunotkun úr 125kW í 10kW.